Viteyes Classic AREDS2, augnvítamín, 60.stk

VITEYES AREDS2 60

60 hylki,  3 mánaða skammtur

Verð:

4.900 kr.

Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað við aldursbundinni augnbotnahrörnun sem byggir á AREDS2 rannsókninni. Í þeirri rannsókn var könnuð fyrirbyggjandi verkun andoxunarvítamína gegn aldursbundinni augnbotnahrörnun.

Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu á Íslandi hjá fólki eldra en 50 ára. Sjúkdómurinn leggst á miðgróf sjónhimnu í augnbotnum og skerðir lestrarsjón og sjónskerpu. Vitað er að ellihrörnun í augnbotnum er algengari með hækkandi aldri og að reykingar ýta undir þróun votrar hrörnunar. Ættarsaga og hár blóðþrýstingur eru einnig áhættuflættir.

Unnt er að hægja á sjúkdómnum og draga úr líkum á votri hrörnun með inntöku ákveðinna vítamína. Viteyes sem er sérþróað vítamín, samsetning með tilliti til augnbotnahrörnunar.

Lútein og zeaxantín eru adoxunarefni sem fyrirfinnast í augnbotninum. Við rannsókn AREDS kom í ljós að þeir þátttakendur sem hófu rannsóknina með litlu magni af lúteini og zeaxantíni í sínu mataræði og fengu viðbætt lútein og zeaxantín meðan á rannsókninni stóð voru 25 prósent ólíklegri til að þróa með sér ellihrörnun í augnbotnum á efri stigum samanborið við þátttakendur með svipað mataræði og tóku ekki inn Lútein og Zeaxantín.

Til að tryggja hámarksgæði og -virkni eru innihaldsefni Viteyes öll í hæsta gæðaflokki og framleidd í samræmi við hæstu staðla í vörugæðum.

UM VÖRUMERKIÐ

Viteyes

Viltu bóka í sjónmælingu?

Eyesland býður uppá vandaða þjónustu í sjónmælingum og snertilinsumælingum. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.

Sjá lausa tíma í sjónmælingu