Skilmálar
Notendaskilmálar
Nafn: Provision ehf.
Heimilisfang: Grandagarði 13, 101 Reykjavík
Símanúmer: 552 5201
Netfang: eyesland@eyesland.is
Kennitala: 650507 3200
Virðisaukaskattsnúmer: 98627
Almennir skilmálar:
Provision ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Eyesland.is og Eyesland gleraugnaverslanir eru reknar af Provision ehf., kt. 650507-3200, Grandagarði 13, 101 Reykjavík. Eyesland er þjónustuaðili fyrir allar vörur og þjónustu sem fer í gegnum vefinn Eyesland.is.
Afhending vöru: Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun er tilbúin. Það getur tekið nokkra daga að undirbúa vöru áður en hún er tilbúin til sendingar ef um sérpantað gler er að ræða. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Eyesland ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Eyesland ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending á næsta pósthús utan höfuðborgarsvæðisins er á pöntunum 10.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.
Verð á vöru og sendingakostnaður: Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti á næsta pósthús. Sendingarkostnaður er 1.500 kr. ef heildarverð innkaupa er undir 10.000 kr. Kaupandi greiðir ekki sendingarkostnað ef heildarverð innkaupa er 10.000 kr. eða meira. Netverð gildir eingöngu þegar vara er keypt gegnum netverslun Eyesland.is, ekki í öðrum verslunum Eyesland.
Afsláttar- og kynningarkóðar: Eyesland getur tímabundið boðið kynningarverð og afslátt, með eða án kynningarkóða. Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni. Þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur.
Ekki er hægt að bæta við afslætti í pöntun eftir að hún er staðfest. Þess vegna þarf að tryggja að allar upplýsingar um slíkt séu skráðar áður en pöntun er staðfest og greidd. Eyesland tekur ekki ábyrgð á kynningum sem birtar eru á vefsíðum þriðja aðila. Eyesland áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð eða kynningarkóða hvenær sem er.
Kynningarafslættir, aðrir afslættir eða kynningarkóðar í prentuðu eða stafrænu formi (t.d. í póstlista Eyesland) gilda ekki með öðrum tilboðum nema annað sé skýrt tekið fram. Eyesland áskilur sér því rétt til að ógilda pöntun viðskiptavinarins ef misnotkun á herferðum eða kynningum verður vart.
Að skipta og skila vöru: Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðsla ef þess er krafist og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.
Ekki er hægt að skila glerjum sem keypt eru og slípuð sérstaklega fyrir viðskiptavin. Ef viðskiptavinir eru ósáttir við umgjörð er hægt að koma í verslanir Eyesland og reynt er að finna aðra umgjörð sem hægt er að nota glerin í.
Trúnaður (öryggisskilmálar): Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing: Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Yfirferð á vöru: Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við Eyesland. Eyesland áskilur sér rétt til að sannreyna staðhæfingu innan sjö daga.
Greiðsla: Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.
Skilmálar Eyesland um notkun á vafrakökum („cookies“)
1. Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru agnarsmáar textaskrár sem eru geymdar í vafranum þínum. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.
2. Notkun Eyesland á kökum
Með því að samþykkja skilmála Eyesland um notkun á vafrakökum er Eyesland m.a. veitt heimild til þess að: bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna, gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum, þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar og birta notendum auglýsingar.
Eyesland notar einnig þjónustu frá þriðja aðila til að greina umferð um vefinn, mæla virkni auglýsinga og til að birta gestum sérsniðnar auglýsingar. Til dæmis má nefna Google Analytics frá Google og Facebook Pixel frá Facebook. Analytics og Pixel safna upplýsingum nafnlaust og gefa skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixels notar sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur Eyesland sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi þessara þriðju aðila.
3. Geymslutími
Kökur frá Eyesland eru geymdar í allt að 24 mánuði frá því að notandi heimsækir vefsvæði Eyesland.
4. Slökkva á notkun á kökum
Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.
Leiðbeiningar um hvernig megi slökkva á kökum eða breyta stillingum um vafrakökur má finna á vefsíðu þíns vafra eða www.allaboutcookies.org.
5. Meðferð Eyesland á persónuupplýsingum
Persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vafrakökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Eyesland lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir nema með yfirlýstu samþykki og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu.
Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.
6. Áskrift á linsum
Lágmarks skuldbinding í áskrift eru 2 afhendingar af linsum. Uppsagnarfrestur áskriftar er 1 mánuður. Síðasta greiðslan gæti komið í formi kröfu í heimabanka.
Provision ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða vegna þess að vara er ekki lengur til í vefverslun. Einnig er áskilinn er réttur til að bóka/breyta pöntunum símleiðis.