POC DO HALF BLADE

POC-DOHB5511 C1455

POC DO HALF BLADE -  Silfur speglagler – CAT 2

Verð:

29.900 kr.
ÞESSI VARA ER UPPSELD

Poc Do Half Blade eru útivistargleraugu fyrir allar tegundir útivistar og henta sérstaklega vel fyrir fjallahjólreiðar, hjólreiðar, jöklaferðir og fjallgöngur, vegna þess að gleraugun eru breið og hylja vel augnsvæðið fyrir vindi og sól. Stillanlegir nefpúðar, með gott grip og haldast vel þó svo að það sé rigning. Létt gleraugu og armendar sitja vel á andliti sem tryggir að gleraugun haldast vel á andliti við hinar ýmsu aðstæður. Umgjörðin er opin að hluta sem gerir það að verkum að sjónsvið stækkar. Möguleiki er að skipta út linsum fyrir linsur með öðru birtustigi. Góð vörn gegn útfjólubláum geislum (UV400).

Clarity linsan í POC gleraugunum gefur ákaflega skarpa sýn á umhverfið og hentar mjög vel útivistina. Hönnun og framleiðsla á Clarity linsunum var unnin í samstarfi við glerframleiðandann Carl Zeiss.

Lagið á gleraugunum passar sérstaklega vel með hjálmum.

UM VÖRUMERKIÐ

POC

POC er leiðandi lífstílsmerki í framleiðslu útivistargleraugna fyrir hjólreiðar, snjóíþróttir, göngur og hlaup. Með það að leiðarljósi að vernda líf og draga úr afleiðingum slysa fyrir íþróttamenn hefur POC þróað flotta línu af hjólagleraugum sem veita hámarksöryggi og efla árangur í íþróttum. Poc gleraugun henta fyrir flestar aðstæður og eru mjög falleg og skemmtileg.

Viltu bóka í sjónmælingu?

Eyesland býður uppá vandaða þjónustu í sjónmælingum og snertilinsumælingum. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.

Sjá lausa tíma í sjónmælingu