POC AIM
POC-AIM1001 C1002
POC AIM – Svartur – Brúnt og gyllt speglagler – CAT 2
Verð:
34.900 kr.Poc Aim eru íþróttagleraugu fyrir allar tegundir útivistar og henta sérstaklega vel fyrir hjólreiðar, jöklaferðir og fjallgöngur, vegna þess að gleraugun eru breið og hylja vel augnsvæðið fyrir vindi og sól. Létt gleraugu, stillanlegir nefpúðar og armendar sitja vel á andliti sem tryggir að gleraugun haldast vel á andliti við hinar ýmsu aðstæður. Umgjörðin er opin að hluta sem gerir það að verkum að sjónsvið stækkar. Möguleiki er að skipta út linsum fyrir linsur með öðru birtustigi. Góð vörn gegn útfjólubláum geislum (UV400).
Clarity linsan í POC gleraugunum gefur ákaflega skarpa sýn á umhverfið og hentar mjög vel í útivistina. Hönnun og
framleiðsla á Clarity linsunum var unnin í samstarfi við glerframleiðandann Carl Zeiss.
Gleraugun passa sérstaklega vel með hjálmum.