NEUBAU er gleraugnamerki frá
Austurríki sem leggur áherslu á sjálfbærni og notast við vistvæn hráefni og
aðferðir í framleiðsluferlinu. Gleraugun eru framleidd í Austurríki, m.a. úr
hágæða titanium og náttúrulegu Acetate sem er niðurbrjótanlegt og umhverfisvænt,
framleitt úr bómull og við. Einnig hefur
Neubau hönnunarteymið lagt áherslu á að minnka magn afgangsefnis sem fellur til
í framleiðsluferlinu, með tilkomu 3D prentunar í framleiðslu á gleraugunum
hefur náðst töluverður árangur í þeim efnum. Umhverfisvernd og að lifa í sátt við umhverfið skín í gegnum vörumerkið. Náttúrulegir litir og falleg smáatriði i bland við framúrstefnuleg form eru einkennandi fyrir Neubau gleraugun. Einnig eru fáanleg gleraugu með titanium sem eru einstaklega létt og þægileg.
Land: Austurríki / Vöruframboð:
Umgjarðir
Vistvænt merki/ endurnýjanleg gleraug.