ZEAL optics

Zeal Optics var stofnað árið 1997 í vesturhluta Bandaríkjanna með það markmið að skapa hágæða gleraugu fyrir fólk sem lifir fyrir útivist og ævintýri.
En það er aðeins upphafið á ferðalagi Zeal Optics. Fyrirtækið leitast við að vera meira en bara gleraugnaframleiðandi og starfar eftir einföldum leiðarljósum: Nota minna, gefa til baka, kanna meira.
Markmið Zeal er að hanna sólgleraugu og skíðagleraugu sem auka ánægju þína af útivist — á sama tíma og þau vernda umhverfið með því að nota plöntubundin efni í framleiðslunni.

Sólgleraugu og skíðagleraugun frá Zeal Optics eru hönnuð með áherslu á framúrskarandi gæði og virði — á sama tíma er dregið úr umhverfisspori til að hjálpa þér að njóta útivistar allt árið um kring.
Allar Zeal Optics vörur eru unnar úr plöntubundnum efnum, þar á meðal lífgrunduðum plastefnum, þráðum, endurunnu plasti, grasúrgangi úr landbúnaði, keramiki og vistvænu asetati.
Í grunninn er tæknin í linsum Zeal allt frá 100% hágæða Polarized sólgleraugna til skíðagleraugna með sérhannaðri linsu, Automatic+ sem er einkaleyfisvarin tækni sem sameinar polarization og photochromic tækni.

Zeal Optics hefur hannað fjölbreytt úrval tímalausra sólgleraugna og skíðagleraugna með frammistöðueiginleikum sem gera þér kleift að líta vel út og gera þitt besta, sama hverskonar ævintýri dagurinn ber í skauti sér. Hvort sem þú ert að slaka á við sundlaugina, veiða, ganga á fjöll eða skíða í djúpum púðursnjó.

Nýjast