Julbo Breeze

J4761122

Cat.3 

Verð:

15.900 kr.

Julbo Breeze eru vönduð og þægileg íþróttagleraugu hönnuð fyrir konur. Hentar vel fyrir hjól, göngur og fl. Með breiðri linsu og góðri loftun. Gleraugun eru með aðsniðinni hönnun og sitja vel á andliti. Festingar fylgja hálsól. Linsan er mött svört/grá.

Möguleiki er að setja sjóngler í gleraugun.

UM VÖRUMERKIÐ

Julbo

Þegar talað er um íþróttagleraugu kemur merkið Julbo ávallt upp. Gæði, öryggi og gleraugu sem vinna með afreksfólki til að ná betri árangri. Frá aldamótum 1900 hefur stofnandi Julbo hannað og þróað gler og umgjarðir fyrir ofurhuga, þá sem hættu sér á stórhættulega og oft á tíðum ókannaða tinda. Allar götur síðan hefur fyrirtækið haft þessa vinnu að leiðarljósi. Íþróttagleraugu fyrir þá sem þora og vilja ná lengra. Julbo er hannað fyrir allar tegundir útivistar með það í huga að auka öryggi og efla árangur í íþróttum.

Viltu bóka í sjónmælingu?

Eyesland býður uppá vandaða þjónustu í sjónmælingum og snertilinsumælingum. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.

Sjá lausa tíma í sjónmælingu