Julbo Aero

J4833114

Photocromic 1-3

Verð:

29.900 kr.

Julbo Aero eru einstaklega létt og vönduð íþróttagleraugu sem eru sérstaklega hönnuð fyrir fólk á ferðinni; við hlaup, hjólreiðar eða annað svipað. Björt og breið linsa truflar hvergi sjónsviðið. Gefur góða loftun og heldur gleraugunum móðulausum.

Gleraugun hafa gildið 1-3 sem þýðir það að glerið aðlagar sig að ólíkum birtuskilyrðum (VLT 17%-72%). Glerið dekkist eftir því sem birtan eykst og gleraugun virka því vel bæði í sólskini og við erfiðar aðstæður á kvöldin eða í rigningu.

Möguleiki er að fá sjóngler í gleraugun.

UM VÖRUMERKIÐ

Julbo

Þegar talað er um íþróttagleraugu kemur merkið Julbo ávallt upp. Gæði, öryggi og gleraugu sem vinna með afreksfólki til að ná betri árangri. Frá aldamótum 1900 hefur stofnandi Julbo hannað og þróað gler og umgjarðir fyrir ofurhuga, þá sem hættu sér á stórhættulega og oft á tíðum ókannaða tinda. Allar götur síðan hefur fyrirtækið haft þessa vinnu að leiðarljósi. Íþróttagleraugu fyrir þá sem þora og vilja ná lengra. Julbo er hannað fyrir allar tegundir útivistar með það í huga að auka öryggi og efla árangur í íþróttum.

Viltu bóka í sjónmælingu?

Eyesland býður uppá vandaða þjónustu í sjónmælingum og snertilinsumælingum.

Sjá lausa tíma í sjónmælingu